Karlar í skúrum – góð hugmynd

eftir Ritstjórn

Karlar í skúrum er verkefni sem er í gangi í hjá félagi eldri borgara í Hafnarfirði. Starfsemi „Karla í skúrum“ snýst um að veita körlum athvarf og aðstöðu til að sinna hugðarefnum sínum, rjúfa einangrun þeirra, styrkja félagslegan grunn og efla félagsleg tengsl.

Tilgangurinn er að fá karlmenn til að standa upp úr sófanum og hitta aðra karla, fá sér kaffisopa saman og spjalla. Einnig til að vinna handverk og fara í gönguferðir. Á sama stað hefur ljósmyndahópurinn komið sér upp glæsilegri aðstöðu til framköllunar og myndvinnslu.

Markmiðið er því að hjálpa körlum til að halda andlegri og líkamlegri heilsu lengur. Opið hús er hjá „Körlum í skúrum“ næstkomandi laugardag í félagsheimilinu að Helluhrauni 8 frá kl. 12-16. Þar verða til sýnis ýmsir munir sem karlarnir hafa verið að skera út, tálga, smíða, renna, slípa, mála og setja saman undanfarin ár.

www.febh.is

Tengdar greinar