Jólabaksturinn hafinn á Hjallatúni í Vík

eftir Ritstjórn

Heimilisfólk á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík í Mýrdal er ekkert að tvínóna við hlutina og eru byrjuð á jólabakstrinum og jólakortagerðinni enda kannski ekki seinna vænna þar sem aðeins örfáar vikur eru til jóla.

Yndisleg samvera við jólabaksturinn, kökuilminn og glettni og léttleika starfsmanna er fullkomin uppskrift af góðum degi á hjúkrunarheimili.

Tengdar greinar