Öflug sjúkrahúsþjónusta í dreifbýli – áhersla á Vestfirði og Austurland

eftir Ritstjórn

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur sett á fót verkefni sem miðar að því að tryggja nauðsynlega mönnun sérhæfðs starfsfólks sjúkrahúsanna í heilbrigðisumdæmum Vestfjarða og Austurlands. Meðal annars er stefnt að því að koma á samstarfi með formlegum samningum milli heilbrigðisstofnana í þessum umdæmum og Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri.

Ráðherra hefur skipað starfshóp sem starfar undir verkefnaheitinu öflug sjúkrahúsþjónusta í dreifbýli og er ætlað að vinna tillögur um samvinnu og ýmsar aðgerðir til að halda úti nauðsynlegri bráðaþjónustu á fyrrnefndum svæðum. Í verkefninu hafa Vestfirðir og Austurland sérstöðu með tilliti til reksturs heilbrigðisþjónustu vegna þess hve langt er í sérhæfðar bjargir. Vegna þessa verða til skoðunar lausnir sem einungis eru taldar eiga við í þessum heilbrigðisumdæmum og önnur svæði geta ekki gert tilkall til á sama hátt.

Áhersla verður lögð á að nýta til verkefnisins fjármagn sem er fyrir hendi hjá hlutaðeigandi stofnunum en þó er gert ráð fyrir að einhverjar tillögur gætu kallað á aukið fjármagn. Meðal annars verður skoðað hvort unnt sé að leita eftir ýmsum styrkjum sem tengjast Byggðaáætlun eða sambærilegra verkefna.

Nánar á vef heilbrigðisráðuneytis HÉR

Tengdar greinar