Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að útvíkka geðheilbrigðisþjónustu við aldrað fólk í heimahúsum og bjóða sérstaklega upp á stuðning geðheilbrigðisþjónustu heilsugæslunnar til m.a. að vinna gegn einmanaleika, kvíða og þunglyndi.
Viðbótarfjárveiting að upphæð 200 milljónum króna verður sett í verkefnið og fjármagni dreift í gegnum fjármögnunarlíkan heilsugæslustöðva um land allt. Markmiðið með þessari auknu þjónustu er að bæta líðan eldra fólks en það getur m.a. stuðlað að því að fólk þurfi síður á sjúkrahúsinnlögnum og stofnanadvöl að halda.
Aldur er bara tala fagnar þessari fjárveitingu enda hefur einmanaleiki og kvíði aukist mikið eftir það ástand heimsfaraldurs sem varað hefur síðustu misserin. Það verður svo áhugavert að sjá útfærslurnar og hvernig framkvæmdin verður á ólíkum stöðum á landinu. Vonandi verður niðurstaðan alls staðar betri líðan aldraðra.