Elsti kvenkyns uppistandari og grínisti í heimi er enn að, 88 ára gömul

eftir Ritstjórn

Samkvæmt heimsmetabók Guinnes er Diana Shulman öðru nafni D’yan Forest elsti kvenkyns grínisti í heimi og er hún enn að 88 ára að aldri.

Hún fæddist í Boston í Massachusetts árið 1934. Hún byrjaði að spila á píanó, taka þátt í kabarettum, syngja heima hjá fólki þar sem hún þóttist oft vera frönsk en síðustu 20 árin hefur hún starfað við uppistand fyrir fjölmarga áhorfendur.

Hún talar oft um kynlíf í uppistandi sínu og segir að mörgum á hennar aldri finnist að það sé búið spil en hún segir það sko ekki búið hjá sér fyrr en hún sé öll.

Nýlega kom D’yan fram í The Drew Barrymore Show, þar sem hún talaði m.a um hvernig hún byrjaði grínferil sinn.

Tengdar greinar