Í skýrslu Nordic Welfare Centre er sveitarfélagið Fjallabyggð nefnt sem eitt af fimm dæmum um samfélög með spennandi áætlanir í heilbrigðis- og velferðarþjónustu á Norðurlöndum en þetta kemur fram hjá Veltek sem er samstarfsvettvangur um tækniþróun í þágu heilbrigðis og velferðar á Norðurlandi (www.veltek.is).
Skýrslan, sem nefnist Integrated healthcare and care through distance spanning solutions – for increased service accessibility, segir frá fimm dæmum um breiða samvinnu milli ólíkra geira þar sem markmiðið er aukin heilbrigðis og velferðarþjónusta þar sem Fjallabyggð er eitt af þeim.
Fjallabyggð er þar nefnt sem dæmi um framsækni í þjónustu við aldraða og fjallað er um samstarfssamning sveitarfélagsins við Veltek og Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Samningurinn er nefndur sem hluti af áætlun sveitarfélagsins um þróun og nýsköpun innan heilbrigðis- og velferðartækni, en hár meðalaldur Fjallabyggðar (fimmtungur íbúa er 67 ára eða eldri) gerir svæðið ákjósanlegt til þróunar nýrra lausna sem munu nýtast fleiri svæðum í framtíðinni.
Samstarfssamningur við Origo um þróun apps
Í frétt á vef Origo kemur svo fram að Fjallabyggð og Origo hafa gert með sér samstarfssamning sem snýr að þróun lausnar sem stuðlar að samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu í sveitarfélaginu.
Félagsþjónustan mun innleiða app þar sem skráning verkefna er í rauntíma og framkvæmd með öruggum hætti. Félagsþjónustan sinnir almennri þjónustu til einstaklinga, m.a. aðstoð við athafnir daglegs lífs, félagslegum stuðningi, heimsendingar á mat, heimilisþrif og fleira.
Með samþættingu verður til örugg leið fyrir heilbrigðisstarfsfólk og starfsfólk félagsþjónustunnar að deila þeim upplýsingum sem þörf er á og þannig auka skilvirkni og gæði þjónustu einstaklinga.
Lausnin sem Fjallabyggð mun taka upp byggir á skipulagstóli og rauntímaskráningu í appi á þeirri þjónustu sem veitt er, þannig fá stjórnendur yfirsýn hvernig dagurinn er að ganga og hvort allt er áætlun, starfsfólkið sem sinnir þjónustunni hefur yfirlit yfir dagskrána sína og hvaða þjónustu það á að sinna. Ef breyting verður á dagskránni þá sést það í rauntíma í appinu.
Með þessari heildaryfirsýn yfir þjónustu sem allir þjónustuveitendur veita, eykst skilvirkni og hagræði í velferðarþjónustu sveitafélagsins.
Boðleiðir milli allra aðila verða skilvirkari, sem hjálpar til við að bæta umönnun og öryggi til einstaklinga sem þiggja þjónustuna. Í þessu verkefni er verið að samþætta gögn úr heimaþjónustu heilbrigðiskerfisins og félagsþjónustunnar þannig það skapist tækifæri til að taka út gögn og hafa rauntímayfirlit yfir alla þá þjónustu sem veitt er. Fjallabyggð tekur þannig mikið forystuskref í því að bæta öryggi og gæði í þeirri þjónustu sem þeir veita sínum íbúum.
Það eru því virkilega spennandi tímar framundan í Fjallabyggð sem áhugavert verður að fylgjast með.