Rekstur heimaspítala er nýjung í rekstri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) sem felst í aukinni heilbrigðisþjónustu, þar með talinni læknisþjónustu, við fólk sem býr heima og þarfnast meiri stuðnings en almennrar félagsþjónustu og heimahjúkrunar. Heilbrigðisráðuneytið hefur gert samkomulag við stofnunina um stuðning við verkefnið. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Díana Óskarsdóttir forstjóri HSU undirrituðu samkomulagið í gær en frá þessu segir á vef stjórnarráðsins.
Heimaspítalinn er einkum hugsaður fyrir tvo meginhópa: annars vegar hruma og fjölveika aldraða og hins vegar fólk á öllum aldri sem er í líknandi meðferð. Þjónustan miðar að því að bjóða persónumiðaða umönnun fyrir fólk sem þarfnast flókinna samsettra lausna, bæði á sviði heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Heimaspítalinn styrkir þannig til muna þá þjónustu sem almennt er veitt í heimahúsum. Markmiðið er að draga úr þörf aldraðra fyrir að leita á bráðamóttöku og fækka innlagnardögum á spítala. Síðast en ekki síst er þjónustan til þess fallin að veita hrumum og fjölveikum öldruðum aukinn stuðning og meira öryggi sem gerir þeim kleift að búa lengur í sjálfstæðri búsetu en ella.
HSU hóf rekstur heimaspítalans í byrjun síðasta árs í tilraunaskyni og hefur unnið að þróun þjónustunnar síðan, fjárfestingu í búnaði, þjálfun starfsfólks o.fl. Stofnað var bráðavitjunarteymi mannað lækni, hjúkrunarfræðingi og sjúkraflutningamanni. Teymið fer í vitjanir í heimahús til þeirra sem þess þurfa með og þeir sem heyra undir teymið hafa jafnframt aðgang að sérstöku vaktnúmeri allan sólarhringinn. Myndsímtöl eru einnig hluti þjónustunnar og jafnframt eru fleiri velferðartæknilausnir nýttar til að sinna eftirliti með einstaklingum með langvinna sjúkdóma í heimahúsum.

Meira hér www.stjornarradid.is