38
Það er fátt sem sameinar þjóðina betur en að fylgjast með landsliðunum okkar á erlendri grund. Þjóðarstoltið og gleðin verður allsráðandi og auðvitað höfum við alltaf trú um að við getum farið alla leið. Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu sýndu okkur í leiknum gegn Portúgal hvers þeir eru megnugir. Það eru því miklar vonir og væntingar um að vel gangi í leiknum gegn Ungverjalandi sem hefst kl 19:30 í kvöld (20:30 að sænskum tíma). Þá munu íslendingar á öllum aldri gera sér gott kvöld, hvort sem er fyrir framan sjónvarpsskjáinn eða á áhorfendapöllunum í Svíþjóð. Aldur er bara tala mun fylgjast með “bláa hafinu” hylla sína menn í Kristianstad.