Um öryggi íbúa á hjúkrunarheimilum

eftir Ritstjórn

Í skoðun á ww.visir.is skrifa þau Anna Björg Jónsdóttir formaður félags íslenskra öldrunarlækna, María Fjóla Harðardóttir og Sigurjón N Kjærnested frá Samtökum fyrirtækja i velferðarþjónustu og Steinunn Þórðardóttir yfirlæknir og formaður læknafélags Íslands um öryggi íbúa á hjúkrunarheimilum.

Þau segja að þjónustan hafi breyst mikið á tíu árum. Til dæmis séu þeir sem flytja á hjúkrunarheimili í dag að glíma við erfiða sjúkdóma og séu veikari en áður sem gerir þeim ókleift að búa lengur heima með stuðningi heimahjúkrunar og félagslegrar þjónustu. Þarfir heimilisfólks séu því orðnar allt aðrar og hjúkrunarheimili dagsins í dag eru fyrst og fremst heilbrigðisstofnanir þó að allt sé gert til að hafa þau sem heimilislegust. 

Ennfremur skrifa þau:

Vandmeðfarin veikindi

Um 71% skjólstæðinga hjúkrunarheimila og öldrunarlækningadeilda Landspítala glíma við heilabilunarsjúkdóm. Einkenni heilabilunarsjúkdóms geta verið ýmist líkamleg, vitsmunaleg eða geðræn, s.s. líkamleg fötlun, líffærabilun, skert skammtíma- og/eða langtímaminni, skapsveiflur, árásarhneigð og ýmsar aðrar áskoranir tengdar hegðun. Það er því engin ein lausn til meðhöndlunar, fagfólk þarf að meta hvern einstakling fyrir sig og hvaða einkenni þarf að meðhöndla og á hvaða hátt. 

Öryggið í fyrirrúmi

Markmið í þjónustu hjúkrunarheimila og annarra heilbrigðisstofnana er að tryggja öryggi allra skjólstæðinga þeirra. Til þess að það geti gengið eftir getur öryggisbúnaður verið nauðsynlegur fyrir þá sem veikastir eru. 

Margir þeirra gera sér ekki grein fyrir hvað þeir geta og hvað ekki. Sumir gleyma því tímabundið að þeir geta ekki gengið og geta dottið úr hjólastólnum sínum. Þess vegna eru stundum notuð öryggisbelti. Settar eru grindur beggja megin rúma til að koma í veg fyrir að sá einstaklingur, sem ekki getur farið sjálfur fram úr á eigin spýtur, reyni það án aðstoðar og slasi sig. Öryggiskerfi við útganga koma í veg fyrir að veikir einstaklingar, á náttfötunum og á leið út í íslensku nóttina, komist út án þess að starfsfólk verði þess vart. Þannig er komið í veg fyrir að íbúar týnist og kalla þurfi út björgunarsveit eins og dæmi eru um. Mikilvægt er að verklag við notkun öryggisbúnaðar sé í sífelldri endurskoðun og að vilji íbúanna sjálfra hvað notkun hans varðar sé virtur eins og mögulegt er. Ef íbúi og aðstandendur hans taka þá einörðu afstöðu að taka frekar áhættuna á byltum en að setja öryggisbelti í hjólastól þarf að taka það til greina. Eins er mikilvægt að reyna af fremsta megni að hafa umhverfi lokaðra deilda heimilislegt, draga eins og kostur er úr þeirri tilfinningu að deildin sé lokuð og tryggja íbúum frelsi til að fara sinna ferða eins vel og aðstæður leyfa. 

Í daglegu tali er öryggisbúnaður kallaður fjötrar og er sem betur fer langt frá þeirri óskemmtilegu mynd sem orðið sjálft dregur upp í hugum fólks. Samkvæmt tölum frá Embættis landlæknis þurfa um 5% íbúa á hjúkrunarheimilum einhvers konar öryggisbúnað. Gæðaviðmið Embættisins miða við að halda skuli því hlutfalli á bilinu 3,1-12,1%, sem sýnir að hjúkrunarheimili á Íslandi eru vel innan þeirra marka. Slíkur öryggisbúnaður er einnig notaður á öðrum heilbrigðisstofnunum. 

Notkun öryggisbúnaðar er ávallt í samráði við íbúa, ef því verður við komið, lækni og aðstandendur og er yfirleitt tímabundið ástand í eins skamman tíma og mögulegt er. 

Lyfjagjöf hluti af meðferð

Alvarlegustu og erfiðustu dæmin eru hjá þeim einstaklingum þar sem heilabilunarsjúkdómur hefur valdið miklum geðrænum einkennum, persónuleika- og atferlisbreytingum. Geðræn einkenni, eins og ranghugmyndir og ofskynjanir, geta valdið einstaklingnum miklum ótta og óöryggi og einstaka sinnum brotist fram í árásarhneigð. Í slíku hugarástandi geta einstaklingar orðið hættulegir sjálfum sér, öðrum íbúum og starfsfólki, að ekki sé talað um þá miklu vanlíðan sem getur fylgt ranghugmyndum og ofskynjunum. 

Í þessum tilvikum getur lyfjagjöf verið hluti af meðhöndlun einkennanna. Það er þó aldrei gert nema í samráði við lækni og eftir föngum við aðstandendur og eftir að gengið hefur verið úr skugga um að engin önnur bjargráð dugi til. Lyfjagjöf er flókin framkvæmd þar sem árangur næst oftast á löngum tíma. Þar er aldrei markmiðið að gefa lyf að óþörfu eða of mikið, en lyf geta verið nauðsynleg í upphafi til að ná tökum á alvarlegum geðrænum einkennum. Lyfjagjöf er endurskoðuð með reglulegu millibili.

Greinina í heild má lesa hér á www.visir.is

Tengdar greinar