Vinnustofa um framtíð þjónustu við eldra fólk á Íslandi fór fram á Hilton í síðustu viku. Í frétt á vef stjórnarráðsins segir að vinnustofan sé hluti af umfangsmikilli vinnu sem nú á sér stað á vegum félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis og felur í sér heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk. Þetta sé eitt af stærri verkefnum ríkisstjórnarinnar og hverfist um að tryggja skuli eldra fólki þjónustu við hæfi, hvort sem um er að ræða heimaþjónustu á vegum sveitarfélaga eða heilbrigðisþjónustu, á forsendum þess sjálfs, á réttu þjónustustigi og á viðunandi tíma.
Fram kom að verkefnið væri að ná að samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu og markmiðið væri meðal annars að fjölga því fólki sem tæki virkan þátt í samfélaginu. Þar með að bæta lífsgæði fólks og draga úr þörf þess fyrir flutningi á hjúkrunarheimili eða sjúkrahús. Farið var yfir stöðuna eins og hún var fyrir hálfri öld þegar stór hluti fólks 80 ára og eldri bjó á elliheimilum og þeirri spurningu velt upp hver við myndum vilja að staðan yrði eftir jafnlangan tíma eða árið 2072.
Um lokaða vinnustofu var að ræða þar sem hagaðilar voru beðnir um að tilnefna fulltrúa sem tækju þátt. Hagaðilar þegar kemur að heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk eru opinberar stofananir/þjónustuaðilar og félagasamtök/ráð sem varða eldra fólk og háskólasamfélag og hagsmunasamtök eldra fólks.
Markmiðið var meðal annars að veita verkefnastjórninni tillögur og ábendingar vegna aðgerðaáætlunar til fjögurra ára sem lögð verður fram á Alþingi vorið 2023.
Opinn fundur mun fara fram í nóvember þar sem öll þau sem vilja geta tekið þátt. Að því búnu fara fyrrnefnd drög að aðgerðaáætlun í samráðsgátt stjórnvalda þar sem kostur gefst á að senda inn umsagnir um hana.
Samhliða vinnustofunni í gær fór fram vinnustofa með aðstandendum fólks með heilabilun þar sem þátttakendur útbjuggu svokallað samkenndarkort og voru niðurstöður þeirrar vinnu kynntar undir lok dags.
www.stjornarradid.is
Fyrri frétt Aldurs er bara tala um skipan starfshópsins sem stóð fyrir ofangreindu málþingi má sjá hér :https://www.aldurerbaratala.is/lifogheilsa/nofn-theirra-sem-skipa-verkefnastjorn-i-endurskodunar-a-thjonustu-vid-eldra-folk/