Í dag er alþjóðlegi alzheimerdagurinn. Í tilefni af því ætlum við hér að greina frá nokkrum ráðum til að halda heilahreysti byggð á upplýsingabæklingi Landspítalans frá nóvember 2017 „Hámörkum heilahreysti – Forvarnir fyrir heilabilun“
Taktu í taumana, lífstíll þinn í dag hefur áhrif á líkurnar á að þú fáir heilabilun síðar
Rannsóknir vísindamanna á mönnum og dýrum hafa leitt í ljós að það er ýmislegt sem við getum gert til að spyrna við fótum. Rannsóknir á fólki sem hefur náð háum aldri án þess að hugarstarfið hafi látið undan síga, gefa líka vísbendingar um hvers konar lífstíll það er sem undirbyggir heilahreysti fram í háa elli og hvaða þættir það eru sem auka hættuna á að við þróum með okkur vitræna skerðingu eða heilabilun.
Áhættuþættir
Þættir sem hafa áhrif á hjarta- og æðakerfi.
Háþrýstingur, sykursýki, ofþyngd og reykingar auka ekki aðeins líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum, heldur auka þessir þættir einnig líkurnar á vitrænni skerðingu og jafnvel heilabilun síðar á ævinni. Slæma kólesterólið stíflar æðarnar, reykingar þykkja æðaveggina og sykursýki minnkar viðbrögð æðanna við breytingum í blóðflæði, en allt þetta getur leitt til þess að líkaminn ráði ekki lengur við að halda góðu jafnvægi á blóðþrýstingnum og hann verður of hár. Rannsóknir hafa sýnt að fólk með langvarandi háþrýsting hefur að meðaltali meiri rýrnun í heilavef og meiri skemmdir í hvíta efni heilans, en fólk sem hefur æskilegan blóðþrýsting.
Svefn og streita
Svefntruflanir og ónógur svefn eru áhættuþættir fyrir Alzheimerssjúkdóm. Líkaminn er í alls konar endurnærandi starfsemi og viðgerðum á meðan við sofum. Hann framleiðir prótein sem hjálpa til við viðgerðir á skemmdum frumum og önnur efni sem styrkja ónæmiskerfið og hafa góð áhrif á líðan okkar. Dýrarannsóknir hafa sýnt að í svefni er úthreinsun á ýmsum úrgangsefnum mun hraðari heldur en í vöku, m.a. á amyloid-beta próteinbrotum sem safnast upp í heila Alzheimerssjúklinga. Hjá svefnvana fólki verður líka meiri framleiðsla á streituhormónum, en streita getur haft áhrif til hins verra á. Lífstíll þinn í dag hefur áhrif á líkurnar á því að þú fáir heilabilun síðar ýmsa aðra sjúkdóma eins og háþrýsting og blóðfituröskun og er einnig áhættuþáttur fyrir heilabilun. Langvarandi streituástand getur smám saman veikt heilann, sérstaklega minnisstöðvarnar
Verndandi þættir
Líkamleg, hugræn og félagsleg virkni.
Hugarstarf eða hugarleikfimi vísar til alls konar verkefna hugans, náms, minnis, greindar, rökhugsunar, dómgreindar o.fl. Margar rannsóknir hafa sýnt að krefjandi hugarstarf, hvort sem það er í gegnum formlega menntun, flókið starf, félagslíf eða önnur verkefni,minnkar líkurnar á því að við greinumst með heilabilunarsjúkdóm. Hugarleikfimin þarf samt að vera þannig að hún reyni á okkur. Ef við getum framkvæmt verkefnið um leið og við gerum eitthvað annað, þá er það ekki hugarleikfimi!
Reglubundin hreyfing
Reglubundin hreyfing vinnur á móti öllum áhættuþáttunum sem taldir eru upp hér að framan. Hún styrkir hjarta- og æðakerfi, minnkar streitu og bætir svefn. Það kemur því ekki á óvart að þeir sem hreyfa sig mikið, standa sig líka almennt betur á prófum sem reyna á vitræna færni, miðað við þá sem hreyfa sig minnst. Enn fremur eru þeir sem stunda reglubundna hreyfingu í minni hættu á að þróa með sér heilabilunarsjúkdóma, en þeir sem ekki hreyfa sig. Reglubundin hreyfing getur veitt mótvægi við aldurstengdri rýrnun í heila og sést hefur marktæk aukning heilavefs hjá fullorðnu kyrrsetufólki eftir aðeins 6 mánaða hressilega hreyfingu, þrisvar í viku.