946
Í dag ætlar hún Elfa að gefa okkur góð ráð til að bæta svefninn okkar. Góður svefn er nauðsynlegur til að viðhalda góðri heilsu og líðan bæði líkamlegri og andlegri. Góður svefn stuðlar að heilbrigðri öldrun. Við mælum eindregið með því að þið gefið ykkur þrjár mínútur i að hlusta á Elfu, mögulega getið þið bætt svefninn ykkar.
Elfa Þorsteinsdóttir er heilsufrömuður sem leggur áherslu á að leiðbeina fólki við að finna heildrænt jafnvægi hugar, líkama og sálar með einföldum daglegum venjum. Elfa er Bowen-, reiki- og EFT þerapisti sem hefur áralanga reynslu í námskeiðahaldi fyrir fólk á öllum aldri.