Heilsuefling í Hafnarfirði

eftir Ritstjórn

Á vef Hafnarfjarðarbæjar kemur fram að í síðustu viku hafi fimmti hópurinn í Fjölþættri heilsueflingu 65+ í Hafnarfirði undir umsjón Janusar heilsueflingar lokið tveggja ára heilsueflingarferli. Það hefur verið hefð frá upphafi að hafa sérstakan útskriftardag fyrir þá hópa sem ljúka þessu tveggja ára ferli.

Fjarþjálfun sinnt af krafti á tímum Covid19 – dagleg hreyfing jókst til muna 

Fimmti hópurinn í röðinni, H-5, hóf markvissa heilsueflingu í byrjun árs 2020 eða rétt áður en Covid-19 skall á hér á landi. Þrátt fyrir samkomutakmarkanir eins og lokanir heilsuræktarstöðva um tíma og fjöldatakmarkanir af ýmsum toga var heilsueflingu haldið markvisst áfram. Breyttu starfsmenn Janusar heilsueflingar verklagi sínu á þessum tíma og sinntu fjarþjálfun af krafti meðan á samkomutakmörkunum stóð. Þessi nálgun skilaði árangri og hafði í för með sér að góðar niðurstöður af tveggja ára heilsueflingu litu dagsins ljós. Dæmi um breytingar voru þær að dagleg hreyfing jókst til muna og þátttakendur farnir að hreyfa sig um og yfir 30 mínútur alla daga vikunnar, hreyfigeta þeirra batnaði, blóðþrýstingur færðist til betri vegar og einstaklingar mátu heilsu sína betri miðað við það hvernig hún var tveimur árum áður eða í byrjun árs 2020.

50 þátttakendur í útskriftarhópi H5 

Þáttakendur í útskriftarhópi voru um 50 og var ánægjulegt að heyra í ,,nýstúdent” að lokinni tveggja ára heilsueflingu hve vel markviss hreyfing og skipulögð þjálfun hafði áhrif á heilsu hans, bæði andlega og líkamlega, þrátt fyrir hækkandi aldur. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri tók einnig til máls, fór nokkrum orðum um mikilvægi verkefnis fyrir þennan aldurshóp og þá stöðu sem eldri borgarar búa við í Hafnarfirði að geta sótt um sérstakan frístundastyrk sem er einsdæmi hér á landi.

Alla fréttina má lesa hér

Tengdar greinar